Grásleppuskúrinn

Gisinn grásleppuskúr
hallar undir flatt
í átt að hafi.

Í norðanáttinni
hvín í honum
og ýlir – einkum
þegar einhver
á leið hjá.

Þá er vert
að staldra við
og hlýða á vindinn
renna sér eftir bárunni
því í hverri bugðu
hvílir saga.

Leave a comment