Orð
Hér má finna nokkur vel valin orð, stundum ábyrg og vel ígrunduð og stundum minna eða alls ekki.
-

Úr Flísum: Spegill, spegill, herm þú mér
Guðrún virti sjálfa sig fyrir sér í speglinum og var engan veginn ánægð með það sem við henni blasti. Fyrir það fyrsta vantaði hreinlega á hana andlitið! Hún blótaði genunum fyrir ljóst útlitið. Hvers vegna gat hún ekki verið dökk yfirlitum, með svartar og fagurlega lagaðar augabrúnir eins og Beta vinkona hennar? Að vísu hafði…
-

arfur
ég ligg endilöng í kjötborðinu marflöt og gapi og fólkið streymir inn til að skoða mig þukla á mér strjúka mér mér er kalt í kjötborðinu en kaupmaðurinn er strangur á svip og segir mér að kvarta ekki því þarna hafi mamma mín legið áður möglunarlaust og mamma hennar á undan og mamma mömmu hennar…
-

Úr einum vasa í annan
Líkt og alþjóð veit var 15 hælisleitendum vísað úr landi aðfararnótt fimmtudags. Þar á meðal voru maður með fötlun og tvær unglingsstúlkur sem höfðu sótt Fjölbrautaskólann við Ármúla á annað ár, náð góðum tökum á íslensku og voru í alla staði til fyrirmyndar, að sögn skólastjóra sem er sleginn yfir tíðindunum. Það þarf ekki að…
-

Sjónarspil
Þýðri hljómkviðu regndropanna lauk með þöglum einleik á steinhörpuna
-

Öld mín sjálfs
Sjálfsánægja Sjálfumgleði Sjálfhverfa Sjálfselska Sjálfshatur Sjálfsvorkunn Sjálfsmyndataka Sjálfsfróun Sjálfstæðisflokkurinn Hætt er við að allt falli þetta um sjálft sig.
