Körlum hefur fjölgað!

Ég hef áður velt fyrir mér kerlingunni og hversu vel mér finnst hún eiga heima með karli en kona með manni. Sjá t.d. Hvers á kerling að gjalda?, Um konur og menn og Sögu af mönnum.

Enn er ég í þessum hugleiðingum og að þessu sinni skrapp ég inn á Tímarit.is og setti annars vegar inn leitarorðin: maður og kona og hins vegar karl og kona. Ég stillti síðan leitina á mismunandi tímabil. Einhverjar skekkjur eru þarna auðvitað; t.d. kom skáldsagan Maður og kona eftir Jón Thoroddsen út árið 1876 og er oft vísað til hennar. Hvað sem því líður má vera ljóst að körlum hefur fjölgað talsvert:

 1850-1900
173 maður og kona
70 karl og kona
 1900-1950
1888 maður og kona
765 karl og kona
 1950-2000
4882 maður og kona
2122 karl og kona
 2000-
607 maður og kona
864 karl og kona

Af þessari litlu athugun má ráða að andstæðuparið maður og kona var býsna algengt, og lengi vel algengara en karl og kona, enda mun eðlilegra a.m.k. samkvæmt máltilfinningu minni.

Ég man ekki betur en að í mínu ungdæmi, fyrir hálfri öld eða svo, hafi verið algengara að tala um konur og menn. Orðið karl var gjarnan haft um gamlan mann, jafnvel bónda, og ekki laust við að það hafi haft yfir sér dálítið neikvætt yfirbrag (og hafi enn?). Ég upplifi t.d. talsverðan mun á neðangreindum setningum:

Við hvaða mann varstu að tala?
Við hvaða karl varstu að tala?

Þessi ungi maður er að útskrifast.
Þessi ungi karl er að útskrifast.

Í fyrri útfærslunni færi ágætlega á karlinum ef maðurinn er gamall en ef ekki fer betur á að nota orðið maður enda yrði það seint notað um konu eða kvár í þessu samhengi. Í seinni útfærslunni hljómar ungur karl afar undarlega, svipað og gamall drengur, og fer þar einnig betur á orðinu maður því ef um konu eða kvár ræðir yrði það tæplega notað.

Leave a comment