Orð
Hér má finna nokkur vel valin orð, stundum ábyrg og vel ígrunduð og stundum minna eða alls ekki.
-

„ÖRFIÐ VINI, KÆRASTA OG EIGINMENN“ Um viðtökur ljóðasafnsins Það mælti mín móðir
Árið 1936 kom út ljóðasafnið Það mælti mín móðir: Sýnishorn af kveðskap þrjátíu íslenskra kvenna. Þar kennir ýmissa grasa, líkt og við má búast af jafn stóru safni og raun ber vitni, en áratugina á undan var nýrómantíkin mjög í tísku og ber safnið þess eðlilega vitni. Mörg ljóðanna geyma sterkar tilfinningar um hvort heldur sem er…
-

DÝRALJÓÐ Í KJÖLFAR VALENTÍNUSARDAGS
Svonefndur Valentínusardagur er nýafstaðinn en hann hverfist gjarnan um ástina, líkt og kunnugt er. Það var áreiðanlega mikið að gera í blómabúðum og konfektgerðum síðastliðinn laugardag. Mögulega seldust einnig fleiri rækjur en aðra daga því ástin á sér margar birtingarmyndin og er ein þeirra ást okkar, margra, á dýrum. Á síðasta ári sendi Draumey Aradóttir frá sér…
-

Ónefnið skvísubók – mánudagstuð á þriðjudegi
Ónefnið skvísubók minnir óneitanlega á annað ónefni, eða kerlingabók, sem var notað nokkuð áður fyrr um bók eftir konu sem þótti heldur ómerkileg. Gömul og þekkt er skiptingin í stelpu- og strákabækur, sem er nógu afleit og útilokandi, en þegar skáldsögur eru ætlaðar fullorðnum þá virðast bækur eftir karlmenn vera einfaldlega það, bókmenntir sem henta öllum kynjum, en…
-

Raddir af jaðrinum
Nína Björk Árnadóttir (1941-2000) var afar merkileg skáldkona. Hún skrifaði ljóð, leikrit og sögur og kom strax með fyrsta verki sínu, 24 ára gömul, eins og ferskur vindsveipur inn á ritvöllinn. Hún þróaði síðan með sér magnaða og ógleymanlega texta sem ramba á mörkum ljóðs, örsögu og einræðu í leikverki og gefa enn fremur einstæða innsýn í…
-

Einstök og sérstök
Þegar ein vinkona mín hlýddi á langt órímað ljóð sem geymdi frásögn af dularfullum atburði upp á heiði velti hún fyrir sér hver munurinn væri á ljóði og sögu. Mörkin eru alls ekki alltaf skýr enda rúmast hvorki skáldskapur né raunveruleiki endilega vel ofan í ferköntuðum boxum, sem síðan má stafla upp í minninu, eins…
-

Hugleiðingar um metsölulista
Fyrir jól birtast gjarnan metsölulistar hér og hvar sem gaman er að renna yfir til að sjá hvaða bækur eru vinsælastar hverju sinni. Það er sjálfsagt ánægjuefni fyrir höfund að sjá bók sína á slíkum lista því það er til marks um ánægju lesenda og ávísun á góða sölu. Metsölulistarnir birtast jafnan á neti, þar…